Main Content

Um LÍN

Hlutverk Lánasjóðs íslenskra námsmanna er að tryggja þeim sem falla undir lögin um sjóðinn tækifæri til náms án tillits til efnahags.

 

Sjóðurinn veitir lán til framhaldsnáms við skóla sem gera sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og gerðar eru til háskólanáms hérlendis. 

 

Lánasjóðnum er einnig heimilt að veita öðrum námsmönnum námslán enda stundi þeir lánshæft sérnám. Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um til hvaða sérnáms skuli lánað.

 

Sjóðurinn sér einnig um veitingu jöfnunarstyrkja til nemenda á framhaldsskólastigi eftir þeim reglum sem um þá gilda.