Main Content

Starfsemi LÍN

Lánasjóður íslenskra námsmanna er þjónustustofnun í eigu ríkisins.

Sjóðurinn veitir nemendum lán til framhaldsnáms og jöfnunarstyrki til nemenda á framhaldsskólastigi samkvæmt þar um gildandi lögum og reglum .

Starfsemin er fjármögnuð með endurgreiðslum námslána, ríkisframlagi og lánsfé.

Hjá sjóðnum starfa 28 starfsmenn.

Sjóðurinn leitast við að þjónusta viðskiptavini sína sem best með Mínu svæði og upplýsingagjöf á vefsvæði sjóðsins, lin.is.

Jafnframt veita starfsmenn þjónustu í síma og með viðtölum virka daga milli kl. 9 og 16.