Starfsreglur sjóðsins
STARFSREGLUR
stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna
1. gr.
Skipun stjórnar
Menntamálaráðherra skipar stjórn sjóðsins þannig: Einn samkvæmt tilnefningu stúdentaráðs Háskóla Íslands, einn samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra námsmanna erlendis, einn samkvæmt tilnefningu Bandalags íslenskra sérskólanema, einn samkvæmt tilnefningu Iðnnemasambands Íslands, einn samkvæmt tilnefningu fjármálaráðherra og þrjá án tilnefningar og skal einn þeirra vera formaður stjórnar og annar varaformaður.
Stjórnin skal skipuð til tveggja ára í senn. Skipunartími fulltrúa menntamálaráðherra og fjármálaráðherra skal þó takmarkaður við embættistíma þeirra ráðherra sem skipuðu þá eða tilnefndu sitji þeir skemur. Varamenn í stjórn sjóðsins skulu skipaðir með sama hætti og til jafnlangs tíma.
2. gr.
Hlutverk stjórnar
Hlutverk stjórnar sjóðsins er:
- að veita námsmönnum námslán,
- að annast fjármál sjóðsins og gerð fjárhagsáætlana,
- að annast gagnasöfnun varðandi þörf námsmanna á námslánum,
- að setja reglur um úthlutun námslána,
- að skera úr vafamálum er varða einstaka lánþega og öðrum málum með bókuðum samþykktum. Úrskurðum stjórnar má vísa til málskotsnefndar, sbr. 5. gr. a. laga nr. 21/1992, um Lánasjóð íslenskra námsmanna.
- að afla upplýsinga um námsskipan og námstíma þeirra skóla sem lánað er til,
- að hafa eftirlit með árangri og ástundun námsmanna,
- að annast útgáfustarfsemi og aðra kynningu á starfsemi sjóðsins.
Stjórn sjóðsins er heimilt að skipa undirnefndir úr hópi stjórnarmanna til að fjalla um einstök mál og gera tillögur fyrir stjórn sjóðsins.
3. gr.
Boðun stjórnarfunda
Formaður kveður stjórnina til fundar og stýrir þeim. Formanni er skylt að boða til fundar ef einhver stjórnarmanna eða framkvæmdastjóri krefst þess. Boða skal til fundar ekki seinna en viku fyrir fund og fundargögn skulu send stjórnarmönnum minnst tveimur dögum fyrir fund.
4. gr.
Lögmæti ályktana
Stjórnarfundir eru ályktunarbærir ef meirihluti stjórnamanna er mættur eða varamenn þeirra. Til að ákvörðun stjórnarfundar teljist gild þarf hún stuðning meirihluta stjórnarmanna. Verði atkvæði jöfn við afgreiðslu mála í stjórn sjóðsins sker atkvæði formanns úr.
5. gr.
Almenn þagnarskylda
Stjórnarmenn eru bundnir þagnarskyldu um allt það er varðar innri málefni lánasjóðsins og telst til viðkvæmra upplýsinga. Sama gildir um hvers konar áform eða aðra hagi þeirra námsmanna sem sækja um lán hjá sjóðunum eða eru greiðendur lána, sem og um önnur atriði sem stjórnarmenn fá vitneskju um í störfum sínum fyrir sjóðinn. Þagnarskylda helst þótt látið sé af stjórnarstarfi.
6. gr.
Staðfesting starfsreglna
Starfsreglur stjórnar skulu teknar fyrir á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar og gerðar á þeim þær breytingar sem stjórnin ákveður. Stjórnarmenn skulu staðfesta þær starfsreglur, sem stjórnin setur sér með undirritun sinni. Allir stjórnarmenn skulu fá eintak af starfsreglum er þeir taka sæti í stjórn sjóðsins. Þeim skulu jafnframt afhent eintök af lögum nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Samþykki meirihluta stjórnarmanna þarf til að breyta starfsreglum þessum. Starfsreglur þessar skulu birtar á vef sjóðsins, lin.is. Þannig samþykkt á stjórnarfundi Lánasjóðs íslenskra námsmanna þann 13. ágúst 2009.