Stjórnarmál
Nemendur/umboðsmenn og greiðendur/ábyrgðarmenn geta vísað málum sínum til stjórnar ef þeir telja að afgreiðsla sjóðsins sé ekki í samræmi við gildandi lög og reglur.
Stjórnin fundar einu sinni í mánuði nema í júlímánuði en mikilvægt er að stjórnarerindi berist 10 dögum fyrir fund svo hægt sé að undirbúa málið fyrir stjórn. Nánari upplýsingar um næsta fundardag stjórnar er hægt að fá hjá sjóðnum hverju sinni.