Á slíkum tímamótum er mikilvægt að líta til baka og átta sig á því hvað hefur breyst á þessum tíma en einnig er mikilvægt að vekja athygli á öllu því góða sem sjóðurinn hefur leitt af sér.
Í dag lánar LÍN til um 12.500 námsmanna, þar af 2.500 erlendis. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur yfir fjölda þeirra sem þáðu lán hjá LÍN á fyrstu árum sjóðsins en skólaárið 1967-68 þáðu samtals 1.027 námslán, þar af tæplega helmingur erlendis. Þessa gríðarlegu fjölgun má skýra með ýmsum þáttum svo sem fólksfjölgun og auknu námsframboði en því er einnig að þakka hagstæðara lánaumhverfi og auknu jafnrétti til menntunar.
Sjá umfjöllun um LÍN hér fyrir neðan: