Main Content

Nýr vefur LÍN

  • 22.08.2010

Ný heimasíða LÍN bætir til muna aðgengi námsmanna og greiðenda að upplýsingum um námslán og þeim reglum sem um þau gilda.

Á heimasíðunni má nálgast upplýsingar um jöfnunarstyrk sem framhaldsskólanemar, sem ekki stunda nám í heimabyggð geta sótt um.

Á síðunni er einnig að finna upplýsingar um ábyrgðir á námslánum og réttindi og skyldur ábyrgðarmanna.

Starfsfólk LÍN hvetur alla viðskiptavini til að kynna sér vel upplýsingarnar sem er að finna á heimasíðunni og í því samhengi er sérstaklega bent á leitarvélina sem er í hægra horni vefsins.