Viðbótarlífeyrissparnaður
Í nýjum úthlutunarreglum LÍN fyrir skólaárið 2010-2011 var sett inn ný regla vegna viðbótarlífeyrissparnaðar og gildir hún líka fyrir skólaárið 2009-2010. Breytingin frá fyrri reglu er í því fólgin að allir lánþegar 2009-2010 sem fengu skerðingu á námsláni sínu vegna útborgunar á viðbótarlífeyrissparnaði á árinu 2009 geta óskað eftir leiðréttingu.
Sækja þarf um það sérstaklega með tölvupósti og senda með afrit (viðhengi) af skattframtali 2010 (yfir tekjur á árinu 2009). Ath. að námsmenn geta nálgast eigið skattframtal á vefþjónustu skattsins og sent það sem viðhengi til LÍN. Þessar nýju reglur taka ekki gildi fyrr en 1. júlí 2010 og því verður ekki hægt að afgreiða slíkar beiðnir fyrr en eftir þá dagsetningu.