Senda kæru
Samkvæmt 5. gr. a í lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna skal málskotsnefnd LÍN skera úr um hvort úrskurðir stjórnar LÍN séu í samræmi við ákvæði laga og reglugerða.
Mál eru því ekki tæk til meðferðar hjá málskotsnefndinni nema fyrir liggi úrskurður stjórnar LÍN í viðkomandi máli.
Kæra skal borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun stjórnar LÍN.